Legal notice
Afgreiðsla pantana
Knitknit býður uppá sendingar með Íslandspósti og Dropp. Pantanir eru afgreiddar innan tveggja virkra daga, ef varan er ekki til látum við þig vita eins fljótt og auðið er.
Vöruskil
Skilafrestur hjá Knitknit eru 14 dagar frá afhendingu, að því gefnu að varan er ónotuð, í upprunanlegum umbúðum og í söluhæfu ástandi. Til að skila vöru sendist hún til Knitknit, Stekkjarhóll, 276 Kjós. Sendingarkostnaðurinn leggst á viðskiptavin og er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur. Knitknit endurgreiðir vöruna strax þegar henni hefur verið skilað.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með virðisauka og kvittanir eru gefnar út með virðisauka.
Greiðsla
Hægt er að greiða með kreditkortum, VISA, Mastercard Maestro og American Express. Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðslan er innt af hendi.
Verð
Knitknit áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Verðið á pöntunarstaðfestingu er það verð sem gildir þegar pöntun á sér stað.
Persónuvernd
Farið er með allar upplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni knitknit.is og hefur enginn nema eigandi vefsins aðgang að þeim. í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhentar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur Knitknit samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Knitknit mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma kreditkortaupplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inn á örugga greiðslusíðu Borgunar (Salt Pay) til að klára kaupin. Aðgangur þinn og notkun knitknit.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tilkynningu um lagaleg atriði.
Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni á vefnum. Við notum vafrakökur einnig til að beina auglýsingum til markhópa, til greiningar, og til að bæta upplifun notenda.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Úrlausn vafamála
Ávalt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldasta hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Neytendasamtökin.
Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur á knitknit@knitknit.is. Spurningum er svarað eins fljótt og mögulegt er.
Cius ehf.
Stekkjarhól, 276 Kjós
knitknit@knitknit.is
Kt. 491120-0530
VAT. 139328