Innifalið í kitti:
- Hip mohair / Efnið í kjólinn
- Uppskrift Milla tullé dress á ensku
- Veldu lit -> þú getur skoðað litaúrvalið á mynd 2
-
Veldu uppskriftina
- Veldu stærð
- Settu í körfu
Þegar þú hefur greitt fyrir pöntunina, færðu uppskriftina senda samstundis í emaili. Við pökkum svo garninu og sendum þér.
Mohair barnakjóll, prjónaður úr tvöföldu Hip mohair. Kjóllinn er prjónaður frá mitti og upp, svo er pilsið prjónað niður frá mitti. Kjóllinn er með 2 pils en auðvelt er að breyta í 1. Það er útskýrt vel í uppskriftinni -> stutt og síð útgáfa.
Kjóllinn á myndinni er í stærð 6-8 ára og prjónaður í litnum Lipstick red.
Veldu þína stærð og lit. Athugið að aðeins er hægt að fá uppskriftina (frítt) með efni í kjólinn.
Stærðir og mál
2 (4) 6-8 (10) 12 ára
Mitti: 53 (56) 62 (68) 72 cm
Lengd Stuttur: 40 (46) 50 (54) 57 cm
Lengd Síður: 74 (80) 85 (90) 93 cm
GARN (innifalið)
2 (4) 6-8 (10) 12 ára
6 (8) 10 (12) 15 dokkur
Prjónar no 4, 4.5, og 5.
Uppskrift fylgir frítt með efni í kjólinn og verður send í tölvupósti.
Ath. prjónar fylgja ekki kitti.