Innifalið í kitti:
- Cuddle me cotton / Efnið í peysuna
- Uppskrift Helle sweater á ensku
- Veldu lit -> þú getur skoðað litaúrvalið á mynd 2
-
Veldu uppskriftina
- Veldu stærð
- Settu í körfu
Þegar þú hefur greitt fyrir pöntunina, færðu uppskriftina senda samstundis í emaili. Við pökkum svo garninu og sendum þér.
Helle sweater, prjónuð blúndupeysa úr Cuddle me cotton, lífrænni pima bómull. Peysan er prjónuð neðan frá og upp og er víð og stutt.
Peysan á myndinni er í Large og prjónuð með litnum Popcorn. Fyrirsætan notar yfirleitt S/M, 169 cm á hæð.
Veldu þína stærð og lit. Athugið að aðeins er hægt að fá uppskriftina (frítt) með efni í kjólinn.
Stærðir og mál
XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
Vídd: 100 (106) 113 (120) 127 (141) 155 cm
Lengd: 38 (40) 42 (44) 46 (50) 54 cm
GARN (innifalið)
XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
6 (7) 8 (8) 9 (10) 11 dokkur Cuddle me Cotton
Prjónfesta: 17 lykkjur x 29 umferðir á prjóna nr 4.5 = 10 cm.
Uppskrift fylgir frítt með efni í peysuna og verður send í tölvupósti.
Prjónar no 4.0.
Ath. prjónar fylgja ekki kitti.
Hönnun: Sigrid Marie Blom fyrir HipKnitShop